Körfuboltafjélagið Ég Sá Hana í Horninu Á Mánabar
15.01.2008 12:46:52 / Einar Örn

þriðjudagsboltinn

Jæja er ekki komin tími til að virkja þessa fornfrægu síðu. Í kvöld er aftur bolti og hverjir ætla láta sjá sig? Eftir síðustu æfingu barst mér hótun frá Hannesi. Hann hafði safnað liði en samt náðum við ekki átta þar sem ekki allir létu sjá sig sem sögðust ætla mæta. Ef þetta kæmi aftur fyrir myndi hann hætta og leggja jordan skónna á hilluna. Kesham hefur ekki efni á að missa hann og þá leikmenn sem hann hefur á sínum snærum. Héðan í frá höfum við það þannig að fyrir kl 15:00 á þriðjudögum verður að vera búið að skrá sig.

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 13:54:50 / Borgþór

Endurvakning KÉSHÁM

Já þið heyrðuð rétt.. hiðstórkostlega félag KÉSHÁM hefur verið endurvakið eftir heimkomu rússneska björnsins! Æfingar hefjast í KVÖLD... og verða framvegis á þriðjudögum Kl:18:50 í íþróttasalnum við Hlíðarskóla... 

 jæja losum okkur við sumarbumbuna

  

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 17:00:08 / kesham

Staðan á nýju ári?

sælir ég hef nú ekkert getað komist í körfu á nýju ári... En ég var að spá bara hvort einhver væri búinn að kíkja uppeftir, hvaða tíma við höfum núna og hvað er mikið sem við skuldum

Svo væri nú líka gaman að vita hverjir ætla hugsa sér að mæta ?

kv.Boggi Bird


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 14:56:38 / Gestur

Sooooorýrýrýrýrýrýrýrýrý

Vegna anna og óreglu á allt og öllu þá verður ekki party hjá mér á þessu ári. Legg því til að málið verði sett í nefnd og góður tími fundin fyrir almennt sukk og svínarí í janúar. Til hamingju með jólin og til gleðilegrar hamingju með áramótið (er ekki bara ein áramót) Skil ekki svon svíndl. Gestur the krút

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 23:08:38 / kesham

KESHÁM Partý

Fengum fyrirspurn frá útlendingunum áðan hvort það yrði ekki þetta partý sem var búið að ræða um... Ég var einmitt að spá hvort við ættum ekki að skella á slíku partýi.

Það er samt alveg spurning hvenær, held það sé alveg orðið frekar seint að hafa það eins og um helgina eða eitthvað en datt í hug hvort að hafa það bara 21.des! Þá er líka Háskólaballið á Broadway um kvöldið!! Auk þess ætti Einar Rússi að vera mættur á svæðið!

Er einhver til í það?

Önnur dagsettning væri líka kúl 20.des það er á miðvikudegi svo það væri jafnvel hægt að hafa Basket æfingu og skella sér svo í partý eftir á!

Látið í ykkur heyra, hvort þið mætið í partý og hvaða dagsettning henti betur

Leiter


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 23:19:29 / kesham

KÉSHÁM liðið í vor ..?

Miðaða við gengið á undanförnum æfingum er raunhæft að ætla að liðið verði farið að spila svona í vor.


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 18:48:09 / Gestur

Hverjir mæta

Ég Larry Bird verð á svæðinu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 19:28:52 / Gestur

Bolti bolti

Langar að vita hverjir mæta því ef fáir skrá sig þá kem ég með Amerískt ofurmenni með mér og ég sver það að hann er stærri en ég sv láta vita.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 12:21:28 / Helgi Ólafs

Tími mánudag 16. okt

Ætla að gera ein tilraun enn til þess að nota þessa síðu. En það virðist vera hálf tilgangslaust, enda mættum við ekki nema tveir síðasta miðvikudag. Endilega ef þið komist ekki, látið þá vita af því hérna á netinu. Það vara bara einn sem afboðaði sig síðast. En allavega hverjir mæta núna ogg hverjir ekki?

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.10.2006 10:47:31 / Helgi Ólafs

Tími miðvikudag 11. okt

Jæja, það mættu bara 5 síðast, var samt ágætis stemmning. En reynum nú að nýta síðuna eins og til er ætlast. Síðast afboðaði sig enginn, þótt við höfum, eins og ég sagði, bara mætt 5. Svo, hverjir mæta í kvöld og hverjir ekki?

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 10:36:52 / Jóhann

Tíminn í Kvöld 09102006

Jæja Piltar

Þá er enn ein helgin liðin og ekki laust við að biðin á elliheimilið styttist með hverjum deginum.

En áður en að við setjum í stól dauðans í ein 10-15ár, væri þá ekki við hæfi að fá smá hreyfingu í kroppinn eftir erfiða og mikla djammhelgi.

Endilega látið vita hverjir eru menn og hverjir mús.


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 12:46:29 / kesham

Tími miðvikudag fjórða óktóbér

Jæja, er ekki rétt að reyna að virkja tillkynningarnar hérna? Hverjir komast og hverjir ekki?

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 18:16:48 / kesham

Tími 25. september 2006 AD

Jæja, þá er komin ný vika og alvaran að hefjast að nýju. Um að gera að rífa snickers-ið úr kjaftinum á sér og fara að hreyfa sig aftur. Hverjir ætla að mæta í tímann annað kvöld klukkan 20:30 ?

» 7 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 18:24:35 / Gestur

Sjóv mí þe moní

Ég krapp aðeins niður í íþróttahús núna áðan til þess að fá allt á hreint hjá dömunni um miðvikudags tímann. Svörin hennar hafa nefnilega verið aðeins misvísandi. En það er nú 100% að við fáum miðvikudagskvöldin. Í kvöld er það klukkan 20:00 en eftir það byrjar tíminn klukkan 20:15. En það er drullu mikilvægt að styggja ekki þessa konu og þess vegna VERÐUM VIÐ AÐ SÝNA HENNI FULLT AF AURUM Í KVÖLD. Svo komið með gullið og ekki gleyma heima (rímar)!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 23:43:15 / kesham

Kvöldin er okkar tími

Jæja, þá er það komið á hreint við erum á mánudögum kl:20:30 og miðvikudögum kl:20:00.. Þá verður tekið á því.. eru ekki allir á að mæta þá?

Þeir sem eru búnir að borga eru:
Boggi
Helgi
Símon
Jóhann
Gestur
Elli

Svo það þarf að klára á miðvikudaginn þið sem eigið eftir...

leiter

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3